Blogg

10.3.2008

Vika í Ísland :D

Jæja þá er bara vika þangað til við komum til Íslands, tíminn er náttúrelga búinn að fljúga frá okkur á ógnarhraða. Við pökkuðum alveg helling um helgina og núna er orðið ansi tómlegt í íbúðinni hjá okkur. Allir veggir orðnir auðir og ansi lítið eftir í skápunum. Ég er nú næstum strax farin að sakna Danmerkur :( En auðvitað verður líka alveg frábært að koma aftur til íslands.

Núna er einmitt nákvæmlega ár síðan við komum síðast til Reykjavíkur og heyrist mér á öðrum íslenskum dönum sem hafa farið heim að það sé margt búið að breytast á einu ári. Það verður gaman að sjá hvort að við verðum á sama máli.

Við eigum svo pantað flug  austur þann 21. mars og ég hlakka alveg hrikalega til að komast aðeins í sæluna :)

Annars er ég að fara núna og fá E-104 svo að Bjarni geti komist beint í rannsóknir þegar við komum heim. Hann er búinn að vera í sambandi við lækni heima og kemst bara fljótlega að þar sem er bara mjög gott því að tíminn sem hann fékk hérna er ekki fyrr en í apríl og þá verðum við náttúrlega flutt á skerið :D

Svo finnst mér að ég eigi skilið hrós fyrir að skrifa svona mikið þetta er nú alveg 6 mánaða skammtur af bloggi miðað við fyrri reynslu á þessari síðu ;)

Skrifað 10.3.2008 kl. 13:15 af

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 64894
Samtals gestir: 25541
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 02:29:31